Myndirnar Mínar
Flottustu fötin!
20.09.2006 12:02:43 / annakata

NÝTT BLOGG!!

Jæja ég er komin með nýtt blogg, nenni ekki að vera hérna lengur :P

Nýja bloggið er:

www.annakata.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 02:12:45 / annakata

Nennekjað Blogga :P

Hæj elskurnar :) ég bara nennekjað blogga, held það sé einhver bloggleti í gangi hjá íslendingum núna og ég vil tengja það við sumarleysið og ákafa rigningu sem veldur því að það er ekkert hægt að gera skemmtilegt :P Ég er búin að vera ein heima í 3 vikur með litlu voffana mína og við skelltum okkur eitt kvöldið á hundasvæðið í nauthólsvík :) það var kósý, mósi merkti hvert einasta strá og panda reyndi að herma eftir :D


Panda og Mósilíus í Nauthólsvík :) eru þau ekki sæt? ;)


Ég og María skelltum okkur á FM957 latino BURN grillpartyjið á Hressó eina helgina þar sem Hernan og Rossie frá kramhúsinu héldu uppi stemningunni með salsadansi og reaggy töktum ;) það var svaka stuð, frítt áfengi, grillkjöt og grillaðir sykurpúðar með jarðaberjum :P nammi namm! það var mjööög gott! Við skemmtum okkur vel og fengum meðal annars VIP inná hvaða stað sem við vildum, u know what am talking about María ;)


Rossie og Hernan að kenna okkur salsa á Hressó :D það tókst misvel!


Takk fyrir miðana á partyjið Hernan ;* Skemmtum okkur vel!


María Sæta að tjilla á Hressó með bleika áfengið :)


Skál í BOTN :D !!!

Síðusta helgi var bara tekin rólega, föstudagskvöldið var bara kúr og Laugardaginn héngum ég og María á ljósastofunni minni og náðum okkur í smá lit og kíktum svo í bíó á Click sem er btw frábær mynd! grétum alveg úr okkur augun :cry:

Nýbúnar að worka tan'ið 8)

Við kíktum svo aðeins í bæjinn en bara stutt, það var alls ekki mikil stemngin og t.d. engin röð inná hverfisbarinn sem gerist mjög sjaldan á Laugardagskvöldi, held að allur mannskapurinn hafi verið eitthverstaðar úti á landi á rassgatinu :D gott mál!

Þessi gaur vildi fá mynd af sér með okkur fyrir superman.is.. frekar glataður + halló :D hehe


Þessi elska var svo yndisleg að plokka og lita á mér frumskógar augnbrúnirnar, þannig núna sé ég loksins útum augun, tek það samt fram að þetta er fyrir plokkun :D

Hafið það gott krúttin mín, ég stefni á heljarinnar Vesturhlíðar vinnudjamm á föstudagskvöldið og svo kíkja á stelpurnar mínar á laugardagskvöldið :) Lof jú ;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 01:16:16 / annakata

Rignig Rigning :/

Er ekki komin tími til að sumarið fari að koma núna? 17.júní er búin og sumarið alveg að klárast ég vil fá að vera allavega smá brún áður en ég fer til Benidorm :P huhumm.. jámm ég er að fara til Benidorm ;) jeijj með Silvíu, Kristín Maríu og Örnu og það verður bara Djaaaammm og svo liggja þunnar í sólbaði með kokteila, eða nei við ætlum ekki að ná að verða þunnar fyr en við komum heim og liggja þá uppí sumarbústað og slaka á í heita pollinum :P

Ég og María Sæta ;)

Ég gerði ekki neitt um helgina og var að vinna 8 tíma á 17.júní á ljósastofunni :P það var líka ekkert að gera hehe :D Er bara búin að vera með kvef, hósta og eyrnabólgu leiðindi, var bara heima með Nanny að kúra og horfa á Prison Break :P shitt hvað þetta er spennandi, nagaði af mér hendina í seinsta þætti!

Ég og Hernan aka. Nanny í góðum helgar fíling :)

Ég beilaði á Baylisinu um helgina :P fékk mér bara kaftein og kók!

Ég var með Grill party seinustu helgi og það var mjög gaman, Pelajo kokkur á Angelo eldaði ótrúúúlega góðan mat handa okkur og latínsku bræðurnir Hernan og Hector grilluðu lambakjöt :P ég og María ákváðum að fá matarást á Pelajo :D hehe :P Gamlir skólafélgara kíktu í heimsókn og Bexý og Guðrún komu hressar og fóru með okkur í Ávaxtakörfuna :P það var snilld :)

Pelajo Kokkurinn, Nanny, Hector grillarar og einhver :D

Gamlir skólafélgara Hákon og Brynjar ásamt Hectori :)

Ég fékk smá Latínska bræðrasamloku :P híhí

Og María líka ;) bara aðeins grófari :D hehe


Nanny í öllu sínu veldi, er hægt að vera meira kúl? :haha:


Guðrún beip, Bexý ofurmódel og Ég ótrúlega hressar :P



» 7 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 01:52:47 / annakata

Hvítasunnuhelgin ;)

Helgin var bara frábær í alla staði :) þriggja daga helgi og skemmti mér konunglega á hverju kvöldi! Takk fyrir helgina allir sem ég hitti, þið eruð frábær ;) ég saknaði samt Berglindar og Erlu frænku ;/

 

Föstudagskvöldið:

  • Kristín María hélt party í hommasvítunni hans Virgils ;)
  • Við spiluðum Hæ Gosa og eitthvað uppspunið spil sem Birkir samdi á staðnum :D hehe
  • Gunnhildur og Kristín drukku hvítvínið sitt en bara Kristín varð nógu hress til að skreppa í bæjinn :P
  • Birkir gerði spilagaldra og fór á kostum
  • Ég var EDRÚ allt kvöldið og skutlaði liðinu í bæjinn og keyrði heim :P dugleg!
  • Var stoppuð í fyrsta skipti af löggunni og látin blása, á Mercedez Benzinum :P úllalla!

Ég komin með Bayli'sið ;)


Laugardagskvöldið:

  • Tvítugsafmæli hjá Maríu Faddlegu og 40 afmæli hjá Dóru kærustu pabba :) Til hamingju elskurnar ;*
  • Ég, Sigrún, Guðný og Arna vorum með surprice veislu fyrir Maríu, fórum útað borða á Madonnu og svo beint uppá Hótel herbergi að drekka og djamma :)
  • María sæta táraðist úr gleði og fékk að vera með bleika prinsessukórónu :)
  • Sumir múnuðu útum hótelgluggan og aðrir flössuðu efri partinum ;) nefni engin nöfn þar!
  • Á meðan aðrir hlupu hótelganginn og gerðu frethljóð og fanst það ótrúlega fyndið :D hehe
  • Dúllan mín sofnaði í sparikjólnum og sokkabuxunum uppí rúmmi og ég stal skilríkjunum hennar og fór með Sigrúnú í bæjinn og fengum VIP inná alla staðina því ég þóttist eiga afmæli í dag og frítt á barnum :P algjör snilld
  • Ég og Sigrún vöktum til 7 og mættum eiturhressar í morgunmat á hótelinu og lumuðum smá með okkur upp til Maríu :)

Sigrún, ég, Arna og Guðný að gera Surprice fyrir Maríu :)

 María Faddlega fékk sér nautalundir á Madonnu sem lyktuðu eins og túrtappar að hennar sögn :D

Við vorum spörkuðum blöðrum útum allan hótelganginn :P


Hvítasunnudagurinn:

  • Krissmarí hringdi í mig og bauð mér að koma með í Bústað um kvöldin og ég nottla stóðst ekki freistinguna, heitapollur og Bayli's hvað er betra?
  • Silver, Bibbi, Eddi, Krissmarí og Arna voru eldhress að spila rassgat þegar ég mætti á staðinn og potturinn alveg að verða reddí :)
  • Allir skelltu sér í bikiníin nema Silver sem sat á bakkanum í bleikri regnslá og sötraði kaptein í kók :P
  • Umræðuefnið í heitapollinum var þvagfærasýking, samangróin leggöng og að pissa í pottinn!
  • Eddi var bara með tvennt í huga "allir úr fötunum" og "kapphlaup á bikiniunum útí hvítá"
  • Krissmarí tók áskoruninni um kapphlaupið, vildi ekki láta kalla sig kellingu, og klæddi Edda í brjóstarhaldarann sinn og svo hlupu þau ísköld út að hvítá en Eddi kom bara hálfum fótinum úti og sneir svo við :D hehe
  • Snilldar bústaðaferð þó hún hafi verið allto stutt!

KrissMarí eldhress í grænum buxum af ömmu sinni :D

Silver alveg Ógó töff ;)

Bibbi, Eddi og Arna í bústaðnum :)

Takk fyrir helgina ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 02:16:03 / annakata

He told me that i thought I was black when i saw me from behind ;D

Sorry fyrir bloggleisið er búin að vera kafnandi úr vinnu seinustu daga :P (vinna upp fyrir visa-reikningum) ;) híhí...

 

New York var algjör æði ég skoðaði alveg ótrúlega mikið af búðum :P og svo skoðuðum við nottla líka mannhattan, frelsis styttuna, time squere, ground zero, wall street og allan þennan pakka :) fórum í 3tíma siglingu kringum mannhatan og skemmtum okkur konunglega :)

Ég og Erla á leiðinni til Mannhattan ógisslega spennar! :)

Á siglingunni með frelsisstyttuna í baksýn :)

Keypti mér 10buxur, örugglega 20boli, 4pör af skóm, 5 jakka fullt af undirfötum og fleira, svo verslaði ég líka á Nanny 2 leðurjakka og skó og levis gallabuxur á engan pening ;) ætla sko pottþétt aftur út að versla, og svo keypti ég ekkert smá krúttlegan búning handa Pöndu minni, ohh hún er svo sæt :)

Panda í nýja New York dressinu sínu ;) ógisslega sæt!!

Bleika karfan sem fylgdi með, en karfan er núna hertekin af Mósa sem sefur þar vært á hverju kvöldi ;) kjánar!

Við komum svo með örugglega 100kíló í yfirvigt allar saman heim :P en sluppum naumlega í gegnum tolllinn! *hjúkket* 8|

Á föstudaginn fór ég í útskriftarveislu til Berglindar sem var að útskrifast af snyrtifræðibraut í FB, *mín er bara PÍNU abbó*... til hamingju dúllan mín ;* love you! Fór svo í bæjinn og dansaði til hálf 6 á Angelo og Hressó :) ýkt stuð.

Whats up? :haha:

Á laugardagskvöldið var ég bara heima að kúra og slaka á og raða í nýja fataskápinn minn og máta öll fötin uppá nýtt :P Beilaði á því að fara í Coca cola Burn partyjið sem vinur minn Jay var búin að bjóða mér á, flottasta party sem haldið hefur verið á íslandi og bara frægt fólk sem komst inn, gala klæðnaður og alvöru kristall afhentur við inngang sem aðgöngumiði ef þú varst á gestalistanum :P en mín beilaði, langar ekki að djamma með frægu fólki og sulla á mig rauðvíni fyrir framan bónusfeðga :/

Ég mæli sterklega með að þið skellið ykkur í verslunarferð þangað stelpur, ódýrt, flott og gaman ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 02:51:03 / annakata

New York ég er alveg að koma ég lofa! Ég veit það er erfitt að bíða ;)

Það eru bara 7 dagar þangað til ég fer til New York og ég get ekki beðið lengur! Bara get það ekki ég er búin að ofsækja victoriusecret síðuna og er næstum komin með alla síðuna á fovirites listan minn og þarf að hemja mig við að grípa ekki í kredid kortið mitt :P úbbs.. :$ langar helst að kaupa allt áður en ég fer út því ég kann ekki að bíða:!:

Ég meina hver getur staðist svona bikini? allavega ekki ég ;)

Eða þetta úff! Stelpur hvort er flottara? Hvoru á ég að fjárfesta í fyrir sumarsólina á íslandi ;P

Svo er pælingin að fara til Eyja á Þjóðhátíð í sumar! Jeijj ég er til, allavega ætlum við flestar stelpurnar úr vinnunni og skemmta okkur konunglega, maður er nú bara einu sinni ungur og ég hef aldrei komið þangað, get ekki beðið, sérstaklega eftir brekkusöngnum, hef heyrt bara góða hluti um hann :P

Hver vill koma með? ;)

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 16:19:40 / annakata

Back to Reality :P

Vá hvað það er skrítið að koma úr 16daga vinnulausu fríi og mæta svo bara strax í 11tíma vinnu á mánudeigi :P jakk! En vikan er samt búin að vera fín og sérstaklega helgin, gaman að hitta alla sem ég er búin að sakna ;*

Smá flipp frá Rome ;P ég og tréð að reyna að vera sexý :D

Meira Rome flipp ;) María likes them BIG!

Á föstudagskvöldið fór ég með Baylis'ið mitt og Súkkulaði vodkað frá Noregi í party til Emelíu með Bexý og fleirum og það var mjög gaman sérstaklega í Ávaxtakörfudrykkjuleiknum (langt orð) :P híhí  Svo skelltum við okkur öll á hverfisbarinn og dönsuðum til 3 ;)

Anna  og Bexý að knúsast ;*

Garðar "appelsína" og Emelía "mango" ;) haha

Á laugardaginn fór ég að spila pool og fótboltaspil með Hernan og Javier og kærustu hans, ég nottla stútaði nokkrum leikjum en samt var mér líka stútað nokkrum sinnum :P Um kvöldið fór ég svo á Pravda með Nanny, Rossie og nokkrum danskennurum úr kramhúsinu að dansa af okkur rassgatið til 5 um nóttina! Tók nokkra Shakiru takta á gólfinu og var svo beðin um að taka þátt í keppninni um Pravda stúlkuna, fór í smá myndatöku með smirnoff ice og svo verður netkostning og ef ég kemst áfram í henni þá fæ ég 10þúsund kall á barnum, ljósakort og fleira ;) og ef ég kemst eitthvað lengra þá gæti ég fengið utanlandsferð!!! jibbí! en öllum sem langar í eitthvað á barnum á pravda kjósið mig svo ég geti splæst í ykkur ;) híhí

Nokkrar myndir frá Ítalíu:

María og Anna Hjá Colosseum! Geðveikur staður!

Anna Pool snillingur að rústa Xavier frá Barcelona ;)


Sætar í sólinni með sólgleraugun :P 25stiga hiti!


Kósý kvöld úti á kaffihúsi með strákunum Mussa, Patrick, Enrique, og 2 gaurum frá new york!


Mussa og Patrick aka. Zoolander wannabe ;)

Anna og María með pósurnar á hreinu!


Misstum okkur aðeins og pósudæminu 8|

Sönnun að við fórum í alvöru í hárgreiðslu og litun í Róm!

Sko við tókum líka myndir af umhverfinu, ekki bara af okkur ;)

Besti ís í Heiminum!!!


Alvöru Hvítt Rusl eða "White Trash!!"


alltaf einhverjir að troða sér á myndirnar okkar! who's that guy?

Samt alltaf gott að vera komin aftur til Íslands þó maður sakni nú Róm enþá pínulítið :) Takk fyrir helgina Berglind, Emelía, Nanny, Rossie og Tinna ;*


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 19:37:50 / annakata

I miss you Rome ;*

Jæja þá er mín næstum því komin heim! Er í Noregi ad slaka á eftir straight 12 daga djamm ;) Svo er það bara vinna og vinna á mánudaginn :/ og alla næstu viku!

En ég sé ekki neitt eftir því að hafa farið, þetta var skemmtilegasta ferð sem ég hef nokkurn tíman farið í takk fyrir mig María ;* það var gaman á hverju einasta kvöldi en samt náðum við varla að vaka með neinni sól, vorum þekktar fyrir að sofa á daginn og vera úti alla nóttina ;) híhí.. eignuðumst fullt af nýjum vinum (reyndar bara stráka) frá öllum heimshornum, grikklandi, egyptalandi, þýskalandi, nígeríu, ameríku og spáni:!: Og við ætlum pottþétt að fara aftur og heimsækja alla :)

Uppáhalds vinir okkar voru samt Musso og Moi, Musso er frá Nígeríu og Moi er hálfur egypti og hálfur frá Grikklandi, þeir sáum um að við skemmtum okkur á hverju kvöldi og Musso reddaði okkur meirað segja VIP í colosseum ;) híhí, hann sýndi okkur svo Vatikanid og við vorum næstum reknar þaðan út :S það er víst bannað að vera "sexy" í vaticaninu :P Moi er barþjónn og Musso þekkir alla svo við komumst líka VIP inná alla skemmtistaðina :) svo var grillparty hjá Musso á næstum hverju einasta kvöldi með 40manns og eitt kvöldið var grillaður STÓLL! :D híhí

Vid fórum á vespur með Musso og Moi, það var ótrúlega gaman, reyndar fór María blindfull á vespu og ég elti í leigubíl fyrir aftan :P var pínu hræðslupúki :evil: Seinasta kvöldið okkar vorum við svo með stráknunum og höfðum það kósý Moi eldaði fyrir mig og sýndi mér Róm í seinasta skipti og María var í grillparty með Musso, Svo morguninn eftir flugum við til Amsterdam!!!

Lentum í Amserdam 8 um kvöldid og tókum lestina beint í Miðbæinn og fórum fyrst í rómantíska siglingu í kringum bæjinn, en siglingin endaði frekar órómantískt þegar ég leit óvart inní einn bát við hliðiná og sá bara feitan gaur sem sat á stól og var að strjúka loðinn magann á sér í engum fötum og nakin stelpa hjá honum 8| jakk! Eftir bátsferdina gengum við um borgina og Rauða torgid sem mér fanst voðalega spennandi enda var líka eitthvað skrítið loftið í Amsterdam þannig manni leið alveg skuggalega vel, og MJÖG góðar brownies ;) híhí

Það koma myndir frá ferðinni í vikunni, bæjí bili ;*


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 16:27:58 / annakata

BElla BElla!

Tad sem er buid ad gerast i Rom:

  • Sudur-ameriskur gaur baud okkur ad vera i Rappmyndbandi fyrir MTV ef vid yrdum i Rom i lok april :P
  • Loggan flautar a eftir okkur og bidur um numerid okkar og straetobilastjorar stoppa med fulla vagna og kalla a okkur!
  • Vid forum eftir nokkra bjora i kirkju og tottumst bidja fyrir en tad kom madur og oskradi a styttuna af Jesus og ta forum vid half hraeddar ut!
  • Vid erum buin ad gista a 4hostelum (sem er mjog creepy ef tid hafid sed myndina) og a einu hosteli var gamall dvergur vid hlidina okkur sem taladi i svefni 8|
  • Eg var spurd hvort eg vaeri med lifvord med mer tar sem folk helt ad eg vaeri supermodel og tad var einhver gamall grahaerdur vodvahlunkur sem elti mig utum allt an tess ad eg taeki eftir honum!
  • Italskir karlmenn elska ad elda mat, ganga fra i eldhusinu, bua um rum og taka til! ;) hvad erum vid ad gera a islandi?
  • Vid forum i litun og blastur badar gerdumst algjorar ljoskur og borgudum bara 6tusund saman fyrir okkur badar!
  • VId forum klukkan 3 um nottina ad skoda fraegustu stiga i heiminum "spanish steps" tar sem model taka oft myndir, forum med 2 itolskum vinum okkar, tad var geggjad ròmo!
  • Vid megum ekki fara i bùd, ad borda, taka taxa eda labba a gotunum an tess ad vera stoppadar a 5minotna fresi og spurdar um numerid okkar eda bodid ut ad borda :P
  • Italia er full af "shemales" eda strakum med brjost :D àfengi, dòpi, fullu folki ad keyra og Mafiunni!

Vid kynntumst Ameriskum hermonnum sem eru nykomnir fra Irak og vid hittum somu hermennina 4sinnum fyrir tilviljun i Rom!!! tad var spes, en kynntumst teim vel og teir aetla ad koma med okkur ad skoda vatikanid :)

Tetta er bara litid brot af tvi sem er buid ad gerast eg blogga meira tegar eg hef tima en eg vona ad tid hafid att goda paska og fullt af djammi ;)

Big LOVE ;* Anna Katrin!


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 11:41:53 / annakata

All eyes on me on Italy ;)

 Hò hò :) èg sit à internetkaffihusi i Midborg ròmar og horfi a kolosseum med odru auga :P tetta er bùid ad vera snilldarferd hingad til, sòl, kokteilar, bònord, og flugvèlar :P

èg byrjadi a tvi ad fljùga til Noregs til Mariu og hun og bròdir hennar sòttu mig à flugvellinn og vid gerdum fàtt annad en ad hanga uppa hàvalofti og drekka stelpubjora og spjalla, fòrum samt ad djamma i akkurat Korter tvi stadirnir loka kl.3 i Noregi :/

Svo flugum vid til Amsterdam a manudagskvoldid bara med 2bakpoka og veski :P komum tangad um 23:00 tròdum bakpokunum i geymslur tvi vid hofdum 8tima til ad gera hvad sem vid vildum i amsterdam:!: vid vorum stalkeradar i lestinni en sem betur fer var Maria med mase i toskunni sinni ;) hihi.... I amsterdam nàdum vid ad hitta fràbaeran gaur frà Barcelona sem spilar strandbolta :P hann baud okkur à barnum allt kvoldid og spiladi pool vid okkur! Hann heitir Xavier og aetlar ad bjoda okkur seinna ad koma til Barcelona og a klubbinn sinn (hann er dj) og vera VIP ;) ùjeh!! Tad voru allir ad reykja marijuana :lol: gaurar voru bara ad vefja sèr jònur ùtum allt:!:

Eftir djamm alla nòttina endudum vid uppà flugstod klukkan 6 og tòkum flugid til ròmar, daudthreyttar og uppgefnar.. Maettum kl.11 um morguninn til Ròmar og fòrum a mjog sleezy hòtel en samt à besta stad, Vid notudum kvoldid til ad labba um og skoda og fòrum i sightseen straetò og vàààà hvad tetta er falleg borg, get ekki bedid eftir ad skoda vatikanid og oll flottu hùsin:!:

Okkur lydur eins og vid sèum gedveikt fraegar, tad stara allir strakarnir a okkur og kalla a eftir okkur "bella bella" einn kom og spurdi mig hvort èg hèti Pamela :haha: èg sagi bara "jà anderson" ;) hihi, svo fèkk èg bònord frà itolskum stràk, en tad er òtrùlegt hvad teir eru ekkert feimnir, labba bara ad manni og kyssa a manni hendurnar sama hversu saetir, gamlir eda ljotir teir eru :D

Bestu kvedjur frà Ròm og vonandi hafid tid tad ykt gott à Islandi, tad er besti stadur i heimi(!) Vid turfum ad fara og finna okkur hòtel til ad sofa à i nòtt 8|

Love you ;* Anna Katrin


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 00:49:17 / annakata

Sjáumst ;)

Jæja nú er ég að fara eftir nokkra tíma í flugvélina :P í þessa stórkostlegu ævintýraferð, ég og maría hættm við að fara til milanó en förum til rómar í staðin í bakpokaferðalag, hljómaði meira spennandi að fara til rómar betra veður og meira að skoða :P við millilendum samt í amsterdam í eina nótt :)

Ég bið að heylsa öllum í kuldanum og vona að þið skemmtið ykkur vel og hafið það æðislegt í páskafríinu, og stelpur verið duglegar að djamma af ykkur rassana elskurnar ;*

  • Ég ætla að reyna að:
  • hitta páfann í róm
  • skoða hórurnar í amsterdam
  • labba efst uppá vatikanið og horfa yfir alla róm
  • skoða kolósseum
  • fara á strönd
  • gista á Hosteli eins og í bíómyndinni (ekki hóteli) :P úff spúkí
  • djamma fullt
  • borða ítalskar pizzur og ís (best í heimi)
  • hitta flotta ítalska fabíóa
  • fara á ítalska týskusýningu
  • verða ýkt brún :P yeah right

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 22:28:35 / annakata

Noregur + Ítalía!

Í dag var ég að tala við Maríu vinkonu mína á msn sem er í Noregi núna með Kolbrúnú litlu stelpuna sína hjá mömmu hennar og pabba, og okkur datt í hug að ég myndi bara koma til hennar í 2 vikur og fara svo í vikuferð til ítalíu frá noregi :P

María Fallegust með Kolbrúnu Sætustu ;)

Ég nottla pantaði mér bara strax ferð á netinu til Noregs, fékk frí í vinnunni og svo pöntuðum við okkur ferð til Róm seinna um kvöldið og allt á sama dag og við ákváðum þetta ;) ótrúlega spennandi!!!

Það er 3stiga hiti í Noregi núna en það er samt spáð 17-20stiga hita í Róm :P jeijj og ég er búin að vera á fljótandi fæði í 2daga útaf jaxlatökunni svo mín bara smellpassar í bikiniið :P

Þannig ég er að fara til Noregs á föstudaginn og svo til ítalíu millilendi í eina nótt í Amsterdam á mánudaginn og svo aftur til noregs 10 dögum seinna ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 02:06:14 / annakata

Kringlóttur haus!

Jæja þá er mín búin að fara í jaxlatökuna, þetta var rosalegt, jaxlarnir mínir voru mjög slæmt tilvik sagði tannlæknirinn, beinfastir í taugina og á hlið inní hinar tennurnar, var fyrst deifð fann ekki fyrir tungunni og vörunum ótrúlega fyndið ástand talaði eins og bjánalingur :D

En ég fékk að horfa á friends á meðan hann var að þessu, ég heyrði bara lætin í borvélinni á meðan hann boraði jaxlana í tvennt og plokkaði þá svo úr ég heyrði bara ógeðsleg brothljóð og blóð útum allt en fann ekki neitt :P

Læknirinn sagði að ég hefði staðið mig eins og hetja, kvartaði ekki neitt og lá alveg kjur allan tíman 8) hehe, en svo keyrði ég heim enþá með deifinguna og fattaði ekki að ég var að slefa blóði því ég fann ekki neitt og ég leit í baksýnispegilinn þá var ég öll útí blóði eins og drakúla í framan og fattaði ekki neitt, því ég fann ekki fyrir neinu :D hahaha fólk í næsta bíl var næstum búnað hringja á lögguna :!:

Núna ligg ég bara heima stökkbólgin í framan með klaka á kinnunum og slefa blóði! ótrúlega sexy ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:53:04 / annakata

Jaxlataka :P ojbjakk

Á morgun á ég að fara í jaxlatöku, taka báða neðri jaxlana sem eru að vaxa eitthvað skakkt á hlið inní hinar tennurnar :D hvað er málið geta þeir ekki bara vaxið rétt eins og hinar tennurnar? 8|

ég ætla sko ekki að horfa á þessa mynd áður en ég fer að sofa :P

En helgin var mjög fín var bara edrú en gerði samt heilmikið til tilbreytingar :) Á föstudagskvöldið var ég að vinna til 11 um kvöldið og ætlaði þá að kíkja í bæjinn til stelpnanna í vinnunni, þær voru á sólon en svo þegar ég var komin fyrir utan var mér ekki hleypt inn :$ aldrei lent í þessu áður á sólon, það var einhver ljótur feitur ljóshærður dyravörður þar með bögg... :klikk: þá fór ég bara að rúnta með Hernan og vinum hans og skutlaði svo Kristjönu heim um 3 leitið :)

Rossie danskennari :) endilega komið á námskeiðin hennar það er geðveikt gaman ;)

Á Laugardaginn vöknuðum ég og Hernan um 12 ótrúelga hress og fórum í kramhúsið að dansa Salsa, frænka hans Rossie er að kenna þar salsa, karabískan dans og reaggy :P ótrúlega gaman og Hernan er dansfélaginn hennar :) Svo fórum við saman í sund og svo útaðborða á american style :P namm! þá var klukkan bara 5 og ég þurftað farað vinna aftur ;/  Um kvöldið fór ég svo að horfa á Hernan og Rossie dansa salsa fyrir einhverja fyrirtækja árshátíð, ótrúlega flott hjá þeim ;)

Svo var stefnan tekin á Hressó að dansa af sér rassinn :D

En hvað er að gerast við stelpurnar mínar? var engin að djamma á laugardagskvöldið, Erla bara róleg í keilu, Berglind örugglega að knúsast með finn :P (hvar varstu dúllan mín?) og Tinna beilaði á djammi og María bara farin með Kolbrúnu til Noregs og svo Argentínu :!:

Kolbrún dóttir hennar Maríu, hún er svo mikil rúsínudúlla og falleg eins og mamma sín, sakna ykkar, love you girls ;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 02:03:31 / annakata

Líkamsáras á vinnustað!

Úff í dag lenti ég í smá líkamsáras í vinnunni :( var að vinna á sól gallery og Gunnhildur kom til mín í ljós, og á sama tíma kom stelpa svona um 25 ára og bað um að fá að fara í tvöfaldan túrbó tíma og að kærastinn hennar væri á leiðinni að sækja hana og ætlaði að borga tímann og hún bauðst til að skilja eftir síman sinn hjá mér til staðfestingar.

 En já ekkert mál ég hleypti henni í túrbó og svo þegar tíminn var búinn fór hún í sturtu og Gunnhildur kom fram til mín og við vorum bara að spjalla og kemur þá ekki gellan á handklæðinu öll rennandi blaut með sjampóbrúsa í munninum dead seriouse og biður um sokka! en nei ég átti ekki sokka svo hún bað mig um rakvél og það átti ég ekki heldur þá fór hún aftur í sturtuna og ég og Gunnhildur þurftum að reyna mikið til að halda niðrí okkur hlátrinum, eftir svona 5minotur kom gellan aftur fram rennandi blaut á handklæðinu og spurði um nærbuxur, og ég benti henni á þær sem voru til sölu á veggnum og hún fór þangað og tók nokkur stykki með sér í sturtuna (Sem er bannað) og þá skilaði hún bara einum nærbuxum og hljóp í sturtuna og ég á eftir henni að hún ætti gjörusovel að skila naríunum og en hún harðneitaði fyrir að vera með aðrar nærbuxur, en ég og Gunnhildur hótuðum að hringja  á lögguna ef hún skilaði þeim ekki og þá komu þær fljúgandi yfir sturtuklefahurðina hjá henni :D

 Svo kom hún AFTUR! og var þá búin að klæða sig og gerði heiðarlega tilraun til að stela úri úr óskilamunum og hálsmeni en með lögguhótuninni fékk ég það til baka. en þá tók hún til bragðs að taka með sér tösku sem var til sölu og fara aftur í sturtuklefann sinn og var þar í dágóðan tíma með töskuna á meðan ég hrindi í eigandann og sagði hvernig staðan væri. Eftir svona klukkutíma af bullinu í gellunni neituðum við henni að fara út fyr en hún borgaði tímann og Gunnhildur stóð fast í dyrunum og passaði það en þá lamdi stelpan mig í gagnaugað alveg hellingsfast og lokaði sig svo inná klósetti...

Þá  fannst ókkur sko nóg komið svo við hringdum á lögguna sem kom og yfirheirði mig,  og Gunnhildi sem vitni.. svo kom í ljós að gellan var búin að smella sér í eitt stykki af naríum sem hún ætlaði að stela undir buxurnar og löggan sá það en hún hélt því fram að systir sín ætti nærbuxurnar sem hún væri í :D  .. en hún var pottþétt heldópuð! :klikk:

Hún ætlaði svo aftur í mig þegar hún heyrði mig tala við lögguna um að kæra hana fyrir líkamsáras og þá var hún sett í handjárn :haha: og sparkaði í fótinn á Gunnhildi og reyndi að sleppa frá löggunni, en það gekk ekki sem betur fer og þeir fóru með hana í kvennafangelsið! og hún öskraði á eftir mér "ÉG SÉ ÞIG AFTUR" 8|

Þetta var frekar ömurlegt en ég var heppin að Gunnhildur var akkurat að koma í ljós á sama tíma, veit ekki hvað ég hefði gert bara ein með þessari klikkuðu :S


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan